Viðskipti
| mbl
| 13.3.2007
| 12:42
Actavis hefur enn áhuga á Merck
mbl.is/
Hefur samheitalyfjahluti Merck verið metinn á um fjóra milljarða evra en samkvæmt heimildum Reuters áttu áhugasamir kaupendur að tilkynna í síðasta lagi í gær um að þeir hefðu áhuga á því að bjóða í eininguna.
Actavis greindi frá því í janúar að félagið hefði tryggt sér fjárhagslegan stuðning frá þremur bönkum vegna mögulegs tilboðs í samheitalyfjahluta Merck. Önnur félög sem talið er að hafi áhuga á að eignast samheitalyfjaframleiðslu Merck eru: Mylan Laboratories,Teva, og Stada Arzneimittel, Ranbaxy og Cipla.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















