Viðskipti
| mbl
| 28.3.2007
| 7:22
Pálmi í Fons eykur við hlutina sína í 365
Fons eignarhaldsfélag,
í
eigu Pálma Haraldssonar
og Jóhannesar
Kristinssonar,
hefur
ásamt tengdum
félögum aukið
samanlagða hluti
sína í 365 hf. úr
14,23% í 16%
með kaupum á 60,8 milljónum
hluta.
Auk Fons eru þetta félögin Fons Capital, Melkot og Grjóta. Í flöggun til kauphallar fyrir helgi var gengi hlutabréfanna í viðskiptunum ekki gefið upp en miðað við 365 þessa dagana má ætla að kaupverðið hafi verið um 210 milljónir króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















