Viðskipti
| Morgunblaðið
| 29.3.2007
| 5:30
| Uppfært
7:33
Woodward skoðar Brakes af alvöru
Líklegt er talið að eigendur Woodward Foodservice, Baugur Group og Talden Holding, sem er í eigu Fons, eignarhaldsfélags þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, séu af fullri alvöru að skoða hugsanleg kaup á matvælarisanum Brakes.
Baugur Group og Talden Holding eiga hvort um sig um 42% hlut í Woodward Foodservice og er jafnvel talið að viðræður séu þegar hafnar á milli eigenda Woodward Foodservice og Brakes. Pálmi Haraldsson, sem er stjórnarformaður Woodward, vildi í gær ekki svara til um hver staða mála væri eða hvort viðræður væru hafnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















