Halli á vöruskiptum við útlönd 11,2 milljarðar
mbl.is
Í frétt Hagstofu Íslands kemur fram að í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 23,9 milljarða króna og inn fyrir 29,0 milljarða króna fob (31,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 5,0 milljarð króna. Í febrúar 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 8,8 milljarða króna á sama gengi.
Iðnaðarvörur 47% alls útflutnings
Fyrstu tvo mánuðina ársins 2007 nam verðmæti vöruútflutnings 6,6 milljörðum eða 17,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 66,9% meira en árið áður.
Samdráttur í innflutningi á bifreiðum
Fyrstu tvo mánuði ársins 2007 nam verðmæti vöruinnflutnings 0,9 milljörðum eða 1,7% minna á föstu gengi en árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á fólksbílum og flugvélum en á móti kom aukning í innflutningi á fjárfestingarvöru.



















