Glitnir spáir 37% hækkun hlutabréfa
Spáir Greining Glitnis því að hlutabréfavísitalan eigi eftir að hækka um 17% til viðbótar á árinu, miðað við lokagildi hennar í lok mars, og vísitalan muni því hækka um 37% á þessu ári. Góð arðsemi og stöðugur vöxtur muni stuðla að hækkun hlutabréfanna.
Gert er ráð fyrir almennt góðri afkomu fjármála- og fjárfestingafyrirtækja og að þau styðji að stærstum hluta við hækkun á hlutabréfaverði til ársloka. Reiknað er með að mörg rekstrarfélaganna muni skila lakari ávöxtun en fyrrnefnd félög. Undantekningarnar er sagðar Actavis og Bakkavör, þar megi búast við góðri afkomu á árinu og viðburðaríkum mánuðum framundan. Um bankana segir m.a. í afkomuspánni:
"Við teljum að ytra umhverfi bankanna sé nokkuð hagfellt sem lýsir sér m.a. í því að vöxtur þeirra er fjármagnaður með fjölbreyttari fjármögnunarleiðum en áður. Við teljum bankana hafa brugðist skynsamlega við gagnrýni erlendra mats- og greiningarfyrirtækja og að hluthafar þeirra muni njóta þeirra aðgerða í formi hækkandi verðs hlutabréfa."
Pólitísk óvissa
Í greinargerð sérfræðinga Greiningar Glitnis er vikið að nokkrum áhrifaþáttum sem geta haft áhrif á hlutabréfaverð á árinu. Úrslit komandi þingkosninga er einn af þeim og óvissa sögð um hver niðurstaðan verður. Lagaleg og efnahagsleg þróun í umgjörð hlutabréfamarkaðarins sé meiri óvissu háð en ella af þessum sökum. "Útkoma kosninganna getur haft umtalsverð áhrif á verðþróun hlutabréfa flestra félaga á markaðnum," segja Glitnismenn.Í hnotskurn
» Greining Glitnis reiknar með að hlutdeild erlendra fjárfesta á innlenda markaðnum muni vaxa á árinu og að dýpt hans aukist samhliða.» Með innlimun Kauphallar Íslands í OMX hafi sýnileiki fyrirtækjanna á alþjóðamarkaði aukist.
» Jafnframt geti það haft talsverð áhrif ef eitthvað í heimsbúskapnum fæli erlenda fjárfesta frá Íslandi.



















