Viðskipti
| mbl
| 20.4.2007
| 15:30
Sala Ticket eykst um 48%
Sala hjá sænsku ferðaskrifstofunni Ticket jókst um 48% á fyrsta ársfjórðungi ársins 2007 og EBIT jókst um 40% borið saman við fyrsta ársfjórðung 2006 sem þó var besti ársfjórðungur í 17 ára sögu félagsins. Þetta kom fram í máli Matthíasar Imsland, stjórnarformanns Ticket Travel Group, og Lennart Käll forstjóra á aðalfundi félagsins 18. apríl.
Ticket er að stórum hluta í eigu Northern Travel Holding, sem er félag í eigu Fons eignarhaldsfélags, FL Group og fjárfestingarfélagsins Sunds.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















