Opna útibú í Kanada
Samstarf Björgólfur Guðmundsson og Almar Grímsson undirrituðu samstarfssamninginn á Þjóðrækniþinginu á Fort Garry Hotel í Winnipeg í gær. mbl.is/Steinþór
Talið er að um 200.000 Kanadamenn séu af íslenskum ættum og þar af búi um 80.000–100.000 í Manitoba.
Fyrir rekur bankinn skrifstofu í Halifax í Nova Scotia á austurströnd Kanada sem annast fyrirtækjaráðgjöf.
Landsbankinn segist í fyrstu munu kynna einkabankaþjónustu þar sem bankinn ávaxtar eignir viðskiptavina m.a. með aðgangi að verðbréfamörkuðum á Íslandi og 13 öðrum Evrópumörkuðum. Stefnt er að stofnun útibús Landsbankans í Winnipeg innan skamms og mun starfsemi hans þá verða fjölbreyttari og falla undir lögsögu fjármálayfirvalda í Kanada.



















