Viðskipti
| mbl
| 2.5.2007
| 12:52
Alcan hyggur á miklar fjárfestingar í Sádi-Arabíu
Kanadíska álfélagið Alcan, móðurfélag Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík, hyggur á miklar fjárfestingar í Sádi-Arabíu. Alcan tilkynnti í vikunni að það muni í samstarfi við sádi-arabíska námufélagið Ma'aden, reisa eitt stærsta álver heims og er fjárfestingin áætluð um 7 milljarðar dala, jafnvirði 450 milljarða króna.
Að sögn Reutersfréttastofunnar mun Alcan eiga 49% hlut í fyrirtæki sem mun reisa um 720 þúsund tonna álver, 1,6 milljóna tonna hreinsistöð og 1400 megavatta raforkuver.
Miklar báxítnámur eru í norðurhluta Sádi-Arabíu og er gert ráð fyrir að þær nægi til að framleiða súrál í að minnsta kosti 30 ár.
Ma'aden er í eigu ríkisstjórnar Sádi-Arabíu. Fyrirtækið rekur einkum gullnámur en áformar að afla 2,5 milljarða dala á þessu ári með hlutabréfaútboði, sem gæti leitt til þess að 40% af hlutafé þess komist í hendur einkaaðila.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















