Viðskipti
| mbl
| 22.5.2007
| 21:20
Alcan hafnaði yfirtökutilboði Alcoa
Höfuðstöðvar Alcan í Montreal í Kanada. Reuters
Yves Fortier, stjórnarformaður Alcan, sagði að tilboð Alcoa endurspeglaði ekki virði Alcan, í því fælist ekki nægileg greiðsla fyrir að ráða Alcan og það væri háð óvissu og skilyrðum.
Alain Belda, forstjóri Alcoa, sagði eftir að tilboðið var kynnt, að samruni Alcoa og Alcan yrði afar hagfelldur fyrir hluthafa og samlegðaráhrifin yrðu mikil. Fortier sagði hins vegar að slíkur samruni væri ekki heppilegur vegna þess að fyrirtækin hefðu afar ólíka stefnu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















