Inneignin í Icesave nemur 370 milljörðum
Ólíkt hefðbundnum innlánsreikningum í Bretlandi þurfa reikningseigendur ekki að greiða sérstaka þóknun fyrir að taka út utan tiltekinna tímabila.
Í tilkynningu segir að Landsbankinn hafi gripið til aðgerða til þess að auka innlán þegar aðstæður fyrir íslensku bankana á alþjóðlegum fjármálamarkaði versnuðu í upphafi síðasta árs. Lykilþáttur í þeim viðbrögðum hafi verið að laða að innlán, einkum innlán einstaklinga, á alþjóðlegum markaði. Icesave sé nú orðin ein af meginstoðum í fjármögnun bankans og geri það að verkum að bankinn sé síður háður sveiflum á alþjóðlegum mörkuðum.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir velgengni Icesave ánægjuefni. "Það er mikilvægt fyrir okkur að halda áfram að auka jafnvægið í fjármögnun bankans því það eykur jafnframt aðgengi okkar að fjármálamörkuðum og lækkar verðið á lánsfé fyrir bankann. Eftir afar vel heppnaða skuldabréfaútgáfu Landsbankans á Evrópumarkaði fyrir rúmri viku hefur álag á skuldatryggingar Landsbankans haldið áfram að lækka. Álagið er í dag 18 punktar sem er það lægsta síðan markaður myndaðist með skuldatryggingar íslensku bankanna haustið 2005. Þetta er til marks um vaxandi tiltrú markaðarins á Landsbankann og stefnu hans."




















