Bankar ákærðir vegna Parmalat-hneykslisins
Einn af bílum Parmalat á ferð í Róm. mbl.is
gretar@mbl.is
Ítalskur dómari hefur tilkynnt að fjórir alþjóðlegir bankar verði ákærðir fyrir þátt í hinu svonefnda Parmalat stórsvikamáli sem kom upp á árinu 2003. Þetta eru Citigroup, Deutsche Bank, UBS og Morgan Stanley. Eru bankarnir sakaðir um að hafa látið ógert að grípa inn í þegar fyrir lá að fyrirtækið stefndi í gjaldþrot.
Samkvæmt ítölskum lögum getur fyrirtæki krafið banka um bætur ef hægt er að færa sönnur fyrir því að bankanum hefði átt að vera ljóst að viðkomandi fyrirtæki væri á leiðinni í gjaldþrot.
Bankarnir neita allir sök í þessu máli að því er fram kemur í frétt á fréttavef BBC-fréttastofunnar. Þar segir að verði bankarnir hins vegar fundnir sekir geti þeir átt yfir höfði sér sektir upp á mörg hundruð milljónir evra. Jafnframt sé mögulegt að þeim verði bannað að vera með starfsemi á Ítalíu.
Héldu áfram að græða
Mjólkurvöruframleiðandinn Parmalat var eitt af stærstu fyrirtækjum Ítalíu og var með starfsemi víða um heim. Seint á árinu 2003 hófst rannsókn á meintum fölsunum á reikningum hjá fyrirtækinu.Hundruð milljarða króna höfðu horfið út úr fyrirtækinu á nokkrum árum og var um að ræða eitt stærsta fjármálahneyksli sem upp hafði komið í viðskiptaheiminum.
Jafnan er fjallað um Parmalat-hneykslið í sömu andrá og þau svikamál sem upp komu á svipuðum tíma hjá bandarísku stórfyrirtækjunum Enron og WorldCom, og vöktu heimsathygli.
Fjölmargir stjórnendur hjá Parmalat og ýmsir aðrir sem tengdust fyrirtækinu voru hnepptir í varðhald þegar rannsókn á þessu máli hófst. Og rannsóknin beindist víðar. Þannig voru til að mynda tengsl fyrirtækisins við ítölsku mafíuna könnuð auk þess sem rannsókn beindist að þætti þeirra banka sem höfðu unnið mest með Parmalat. Vaknaði fljótlega grunur um að bankarnir hefðu vísvitandi dreift röngum upplýsingum til að styðja við verð hlutabréfa fyrirtækisins.
Parmalat varð gjaldþrota en var síðar endurreist. Á síðasta ári fór fyrirtækið í mál við bankana fjóra og fullyrtu stjórnendur Parmalat að bönkunum hefði verið fullljóst hver staðan væri. Engu að síður hefðu þeir haldið áfram að græða á viðskiptum sínum við Parmalat.
Í hnotskurn
» Parmalat-hneykslið kom fyrst upp árið 2003, er ljóst varð að hundruð milljóna króna höfðu horfið úr bókhaldi Parmalat.» Ítalskur dómari hefur ákveðið að ákæra bankana Citigroup, Deutsche Bank, UBS og Morgan Stanley fyrir að grípa ekki inn í þegar þeir áttu að hafa vitað allt um fjármálaóreiðuna.
» Grunur hefur verið um tengsl á milli Parmalat og ítölsku mafíunnar. Fyrirtækið fór í þrot en hefur verið endurreist.



















