Viðskipti
| mbl
| 19.6.2007
| 14:08
Stærsta námufélag heims íhugar að bjóða í Alcan
Höfuðstöðvar Alcan í Montreal. Reuters
Bandaríska álfélagið Alcoa, sem rekur m.a. álver í Reyðarfirði, hefur lagt fram 28,7 milljarða dala tilboð í Alcan. Breska blaðið The Times sagði raunar í dag að BHP væri að íhuga að leggja fram tilboð í Alcoa frekar en Alcan og myndi tilboðið hljóða upp á 40 milljarða dala. Er þetta í annað skipti á fjórum mánuðum, sem blaðið birtir frétt þessa efnis. Gengi bréfa Alcoa hefur hækkað í dag kjölfarið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















