Verðbólga á Íslandi 3% samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs
Tólf mánaða breyting vísitölunnar mældist 2,1% í EES ríkjunum og hélst óbreytt milli mánaða. Mánaðarhækkun samræmdu vísitölu neysluverðs mældist 0,4% á Íslandi á meðan hún reyndist vera 0,1% hjá EES ríkjunum, að því er segir í Hálf fimm fréttum Kaupþings.
Helstu ástæður lækkandi verðbólgu hér á landi má m.a. rekja til áhrifa matarskattslækkana, styrkingar krónunnar og eins verðbólguskots sem var á sama tíma í fyrra í kjölfar gengisveikingar krónunnar.
„Helsti munurinn milli samræmdu vísitölu neysluverðs og vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands mælir er að samræmda vísitalan tekur ekki mið af þróun húsnæðisverðs. Mæld verðbólga frá Hagstofunni mælist því almennt hærri.
Búast má við að verðbólga skv. samræmdu vísitölunni haldi áfram að lækka í næsta mánuði enda mældist tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs án húsnæðis skv. Hagstofunni 1,2% nú í byrjun júlí.
Ísland færist niður milli mánaða á listanum yfir ríki EES sem búa við mestu verðbólguna. Í maí var Ísland í 6. sæti en er nú komið í 8. sætið. Þau lönd sem búa við meiri verðbólgu en Ísland eru Eystrasaltslöndin, Ungverjaland, Búlgaría, Rúmenía og Slóvenía. Ísland er nú á svipuðu róli og ríki á borð við Írland (2,8%) og Grikkland (2,6%) hvað varðar verðbólgu," samkvæmt Hálf fimm fréttum Kaupþings.



















