Viðskipti
| AP
| 24.7.2007
| 8:39
Hagnaður Telenor jókst um 42% á öðrum ársfjórðungi
Hagnaður norska fjarskiptafyrirtækisins Telenor jókst um 42% á öðrum ársfjórðungi en sala félagsins jókst talsvert í fjórðungnum. Nam hagnaður Telenor 3,25 milljörðum norskra króna, tæpum 34 milljörðum íslenskra króna, samanborið við 2,28 milljarða norskra króna á sama tímabili í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá Telenor skýrist aukinn hagnaður einkum af lægri skattgreiðslum og betri afkomu tengdra fyrirtækja.
Tekjur Telenor námu 23,16 milljörðum norskra króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 22 milljarða á sama tímabili í fyrra.
Hlutabréf Telenor lækkuðu um 2,3% í norsku kauphöllinni í morgun eftir að félagið kynnti afkomu sína.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















