Krónan hefur veikst um 12,6% á tæpum mánuði

mbl.is

Krónan hefur veikst um 3,14 % í viðskiptum dagsins (kl. 10:45). Gengi krónu hefur því lækkað um tæp 12,6% frá 19. júlí þegar hún lokaði í sínu sterkasta gildi á árinu. Áhættuflótti fjárfesta frá hávaxtamyntum í kjölfar vandræða á bandarískum húsnæðislánamarkaði er ein helsta ástæðan fyrir veikingu krónunnar undanfarið. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Aðrar hávaxtamyntir, t.a.m. tyrkneska líran , ástralski dollarinn og nýsjálenski dollarinn hafa fallið talsvert í viðskiptum dagsins gagnvart helstu myntum og hafa, líkt og krónan, veikst töluvert eftir að skjálfta tók að gæta á mörkuðum.

Samkvæmt miðgengi Seðlabanka Íslands stendur Bandaríkjadalur í 69,5 krónum, evran í 93,06 krónum og pundið í 137,5 krónum.

„Fjárfestar hafa notað lágvaxtamyntir eins og jenið eða svissneska frankann til fjármögnunar á fjárfestingum í hávaxtamyntum og hagnast þannig á vaxtamuninum sem er á milli myntanna. Slík fjárfesting er þó aðeins ábatasöm falli gengi hávaxtamyntarinnar ekki um það sem nemur vaxtamuninum gagnvart lágvaxtamyntinni á líftíma fjárfestingarinnar. Í kjölfar óróa á mörkuðum og aukinnar áhættufælni hafa fjárfestar verið að loka stöðum sínum í þessum vaxtamunarviðskiptum sem leiðir af sér veikingu hávaxtamyntanna.

Það er ljóst að haldi þessi skjálfti áfram þá getur það tímabundið leitt af sér frekari veikingu íslensku krónunnar. Við erum þó þeirrar skoðunar að þegar ró færist yfir markaði muni krónan styrkjast nokkuð á ný, enda vextir enn mjög háir hérlendis, auk þess sem undanfarin gengislækkun á sér ekki rót í neikvæðum innlendum fréttum eða verri horfum fyrir íslenskt efnahagslíf. Enn sér þó ekki fyrir endann á hræringum erlendis, og meðan sú er raunin mun verða órói á gjaldeyrismarkaði hérlendis sem annars staðar," samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK