Viðskipti
| mbl
| 24.8.2007
| 14:30
Landsbankinn spáir styrkingu krónunnar
mbl.is/Júlíus
„Niðurstaðan er því sú að þegar jafnvægi myndast á fjármálamörkuðum á nýjan leik eru allar líkur á því að gengi krónunnar styrkist á ný. Um næstu áramót ætti gengisvísitalan að vera í námunda við 115 stig.
Á næsta ári teljum við áfram líklegast að krónan haldist sterk og að gengisvísitalan verði að jafnaði 115 stig á árinu. Þegar frá líður er óhjákvæmilegt annað en að krónan veikist samfara minnkandi vaxtamun á árunum 2009-10 og leiti til baka í jafnvægisgildi vísitölunnar sem við teljum að sé á bilinu 125 – 130 stig," samkvæmt sérriti Greiningardeildar Landsbankans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















