Hagnaður af rekstri Smáralindar
Frá Smáralind. mbl.is/Einar Falur
Heildareignir félagsins námu 14.766 milljónum um mitt árið en þær námu 15.247 milljónum samkvæmt árshlutauppgjöri 2006. Eigið fé félagsins í lok tímabilsins var 6282 milljónir og eiginfjárhlutfall félagsins 55 % að teknu tilliti til víkjandi láns frá móðurfélaginu.
Fram kemur í tilkynningu frá Smáralind, að gestum Smáralindar fjölgaði um 4,7% á milli uppgjörstímabila og velta í verslunum hafi verið að aukast eins og undanfarin ár. Í apríl s.l. hófst Norðurturninn ehf., systurfélag Smáralindar ehf., handa við byggingu svokallaðs Norðurturns á norðvesturhluta lóðar Smáralindar. Norðurturninn verður tengdur Smáralind með tveggja hæða tengibyggingu sem mun hafa veruleg áhrif á alla starfsemi verslunarmiðstöðvarinnar, að því er segir í tilkynningunni.



















