Nefnd fer yfir lagaumhverfi sparisjóðanna
Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir, að mikil gerjun hafi verið hin síðari ár á íslenskum fjármálamarkaði. Árið 2002 var ráðist í miklar breytingar á lagaumhverfi sparisjóðanna þegar samþykktar voru breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem gerðu sparisjóðum kleift að breyta félagaformi sínu í hlutafélög. Enginn sparisjóður hafi þó valið þessa leið fyrir utan Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, sem samþykkti á stofnfjáreigendafundi stofnun hlutafélags um starfsemi sjóðsins.
Þá hafi orðið nokkur umræða um, að ákvæði gildandi laga um starfsemi sparisjóðanna hafi ekki virkað sem skyldi, m.a. þau sem heimila breytingu sparisjóðs í hlutafélag, viðskipti með stofnfjárhluti og útgáfu nýs stofnfjár.
Óskað hefur verið eftir að Fjármálaeftirlitið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samband íslenskra sparisjóða og Samtök fjármálafyrirtækja taki þátt í nefndarstarfinu með sérfræðingum viðskiptaráðuneytisins.
Formaður nefndarinnar verður Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn skipaðir án tilnefningar verða Tanya Zharov, lögfræðingur hjá Íslenskri Erfðagreiningu, og Jóhann Antonsson, stjórnarformaður Sparisjóðs Svarfdæla. Er miðað við að nefndin ljúki störfum fyrir 1. júní á næsta ári.



















