Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga 822 milljónir króna
Arðsemi eigin fjár var 84,0% samanborið við 37,7% arðsemi á sama tímabili á árinu 2006. Hreinar vaxtatekjur lækka um 2 millj. kr. frá fyrra ári og nema nú 104 millj. kr. Hreinar rekstrartekjur námu 1.323 millj. kr. og hækka um 786 millj. kr. frá fyrra ári. Rekstrarkostnaður á tímabilinu nemur 232 millj. kr. og hækkar um 32 millj. kr. frá fyrra ári. Virðisrýrnun útlána nam 101 millj. kr. og hækkar um 19 millj. kr. frá fyrra ári.
Heildareignir námu 11.546 millj. kr. og hafa aukist um 13% frá árslokum 2006.
Útlán til viðskiptamanna námu 7.035 millj. kr. og hafa aukist um 4% á árinu. Innlán námu 5.333 millj. kr. og jukust um 6% á tímabilinu. Eigið fé nam 3.115 millj. kr. í lok tímabilsins og eykst um 34% á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall sjóðsins í lok júní var 14,0% en það var 12,0% í árslok 2006, að því er segir í tilkynningu.



















