Hagnaður Stoða 4,3 milljarðar
Ómar Óskarsson
Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði ársins 2007 námu 4.162 millj. kr. en námu 2.778 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 170.319 millj. kr. en námu 156.634 millj. kr. í árslok 2006.
Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 34.077 millj. kr. en þar af nam hlutafé 2.721 millj. kr. Eigið fé í árslok 2006 nam 22.717 millj. kr.
Félagið er fasteignafélag sem sérhæfir sig í útleigu og rekstri atvinnuhúsnæðis. Fasteignir félagsins eru verslunarhúsnæði, skrifstofur, hótel og vörugeymslur og er fermetrafjöldinn yfir 648 þúsund. Fjöldi leigutaka er rúmlega 1.000. Meðal stærstu leigutaka má nefna Haga hf., Magasin Du Nord, ILLUM, Flugleiðahótel, Fasteignir Ríkissjóðs, Gudme Raaschou Bank og Danke Bank. Nýtingarhlutfall fasteigna er um 97%, samkvæmt tilkynningu.



















