Viðskipti
| mbl
| 3.9.2007
| 10:31
Ísland viðkvæmt fyrir því ef lánamarkaðir þrengjast
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's segir að Ísland, Lettland, Búlgaría, Tyrkland og Rúmenía séu viðkvæmust af svonefndum nýmarkaðslöndum fyrir því ef núverandi lánsfjárkreppa á alþjóðlegum peningamarkaði magnast og breiðist út.
Fyrirtækið segir að Rússland, Egyptaland, Úkraína og Tékkland eigi minnst á hættu en Litháen, Líbanon, Slóvakía, Pólland, Ungverjaland og Suður-Afríka séu í miðjum hópi.
S&P leggur mat það hve ríki eru vel í stakk búin til að mæta óhagstæðum utanaðkomandi skilyrðum í efnahagsmálum. Að sögn APX fréttastofunnar hefur S&P ekki lækkað lánshæfismat neins ríkis enn vegna umrótsins á lánsfjármarkaði að undanförnu og það bendi ekki til þess, að lánsfjáreinkunnir verði lækkaðar þótt þjóðir séu flokkaðar í viðkvæmasta hópinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















