Bakkavör með bestu ársskýrslu kauphallarfélaga
Fulltrúar Bakkavarar Group taka við verðlaununum fyrir bestu ársskýrsluna úr hendi Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra í gær. mbl.is/Kristinn
Við athöfnina í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar flutti Bjarni Ármannsson, fv. forstjóri Glitnis, ávarp en bankinn var með bestu ársskýrsluna fyrir árið 2005. Í fyrra runnu verðlaun fyrir vel unnar ársskýrslur til Össurar og Bakkavarar.
Markmið þessara verðlauna er að vekja athygli á nauðsyn þess að vandað sé til verka við gerð ársskýrslna og undirstrika mikilvægi þeirra í upplýsingagjöf fyrirtækisins. Dómnefnd skipuðu Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, Heimir Haraldsson endurskoðandi og Stefán Haraldsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga. Við valið í ár var lögð sérstök áhersla á stjórnarhætti fyrirtækja og umfjöllun um launakjör stjórenda samkvæmt reglum fyrir útgefendur verðbréfa í kauphöllinni.
Í umsögn dómnefndar um ársskýrslu Bakkavarar segir að hún sé falleg, þar sem útlit og hönnun styðja vel við skipulega umfjöllun um stefnu, starfsemi og árangur. Skýrslan sé vel útfærð lýsing á rekstri félagsins og þar sé að finna greinargóða samantekt á því hvernig markmið félagsins og vöruþróun taka mið af breytingum samfélags- og viðskiptahátta eftir markaðssvæðum og markhópum. Framsetning efnis er sögð afar skýr og efnið vel flokkað.



















