Íslendingar kaupa fasteignir í Noregi

Frá Ósló, höfuðborg Noregs.
Frá Ósló, höfuðborg Noregs. mbl.is/Golli

Fasteignafélagið City Center Properties, sem er að stærstum hluta í íslenskri eigu, hefur keypt átta stórar fasteignir í Noregi af norska fasteignafélaginu BSA Kontoreiendom. Um er að ræða sex skrifstofubyggingar og tvær byggingar sem hýsa bæði skrifstofur og vörugeymslur, alls 67 þúsund fermetrar. Sjö bygginganna eru í Osló og ein í Bergen.

Í tilkynningu segir, að eignir City Center Properties séu metnar á, á annan tug milljarða íslenskra króna og með kaupunum hafi félagið skipað sér í hóp 20 stærstu fasteignafyrirtækja Noregs.

Fjögur félög eiga hlut í fasteignafélaginu City Center Properties, þar af þrjú í eigu Íslendinga: Isthar, félag í eigu Róberts Melax sem á 40% eignarhlut, Saga Capital Fjárfestingarbanki sem á 20% og KEA sem á 10%. Að auki á norska félagið Auris Holdings 30% eignarhlut. Tveir bankar, Glitnir og Bnbank í Osló fjármögnuðu viðskiptin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK