Þorsteinn Örn Guðmundsson ráðinn forstjóri Northern Travel
Þorsteinn Örn Guðmundsson
Northern Travel Holding er í eigu Fons hf. (44%), FL Group hf. (34%) og Sund hf. (22%). Félagið var stofnað í janúar 2007 og er fjöldi starfsmanna 2.200. Flugvélafloti félaganna telur um 40 vélar og árlega flytja þau samtals rúmlega 7 milljónir farþega, að því er segir í tilkynningu.
Heildarvelta dóttur- og hlutdeildarfélaga NTH er um 100 milljarðar kr. Fjárfestingar NTH eru:
Sterling Airlines (100%), Iceland Express, Hekla Travel (100%), Astreus (51%), Ticket (29,26%).
Í tilkynningu kemur fram að Þorsteinn Örn hóf störf hjá FL Group í september árið 2004 sem forstöðumaður stefnumótunar. Í ágúst 2005 tók hann við stöðu framkvæmdastjóra stefnumótunar og viðskiptaþróunar og starfaði síðan sem forstjóri FL Travel Group frá október 2005. Þorsteinn Örn hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs FL Group frá byrjun árs 2006.
Þorsteinn Örn lauk mastersprófi (M.Sc.) í byggingarverkfræði frá Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn (DTU) árið 1999. Áður starfaði hann sem stjórnunar- og rekstrarráðgjafi hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company í Skandinavíu og Singapore á árunum 1999 – 2004.



















