Óbreytt mat Moody's á íslensku bönkunum
arnorg@mbl.is
Í nýjum úttektum á íslensku viðskiptabönkunum kemur fram óbreytt mat alþjóðlega matsfyrirtækisins Moody's á lánshæfi þeirra allra. Allir íslensku bankarnir eru með C í einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika, Aa3 á langtímaskuldbindingum og P-1 á skammtímaskuldbindingum. Horfur eru sagðar stöðugar hjá þeim öllum nema hjá Kaupþingi banka en þar eru þær áfram í skoðun með mögulegri niðurfærslu eins og tilkynnt var um um miðjan ágúst í kjölfar kaupa Kaupþings banka á hollenska bankanum NIBC.
Það að einkunnir íslensku bankanna séu óbreyttar í þessum nýju skýrslum (credit opnion) Moody's er í reynd í takt við ummæli sérfræðinga fyrirtækisins í upphafi mánaðarins en þá sögðu þeir að litlar sem engar líkur væru á því að óróinn á fjármálamörkuðum heimsins kæmi til með að hafa neikvæð áhrif á lánshæfiseinkunnir banka.
Tryggingarálag á skuldabréf íslensku bankanna lækkaði umtalsvert í gær en svo virðist sem markaðurinn hafi brugðist mjög jákvætt við skuldabréfaútgáfu Glitnis í Bandaríkjunum. Þannig lækkaði tryggingarálagið á bréfum Glitnis um ein 0,25%.



















