Viðskipti
| mbl
| 27.9.2007
| 8:24
| Uppfært
11:18
FL Group ætlar ekki að bjóða í Pret a Manger
mbl.is
Í Independent kemur fram að heimildir blaðsins hermi að ekki sé vitað hvers vegna FL Group hafi hætt við en talið er að væntanlegt kaupverð verði allt að 450 milljónir punda.
Pret a Manger var stofnað árið 1986 af Sinclair Beecham og Julian Metcalfe. Árið 2001 keypti veitingahúsakeðjan McDonald's þriðjung í fyrirtækinu á 50 milljónir punda en sá hlutur er nú metinn á 150 milljónir punda. Fjárfestingabankinn Rothschild annast útboðið á Pret a Manger. Fyrirtækið rekur um 150 staði og er vel þekkt í Bretlandi sem og Hong Kong og New York.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















