Viðskipti
| mbl
| 9.10.2007
| 15:43
Spá talsverðri hækkun vísitölu neysluverðs
Hagstofan birtir nýtt gildi vísitölu neysluverðs á morgun. Greining Glitnis spáði því í dag, að vísitalan muni hækka um 0,5% milli mánaða en Greiningardeild Landsbankans bætir um betur og spáir því að vísitalan hækki um 0,8%.
Gangi spá Landsbankans eftir mun 12 mánaða verðbólga hækka úr 4,2% í 4,8%.
Helstu áhrifavaldar eru útsölulok, áframhaldandi hækkun húsnæðisverðs og veiking krónunnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















