Viðskipti
| mbl
| 22.10.2007
| 12:11
Nýr forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Eimskip
Nanna Herborg Tómasdóttir
Nanna Herborg hóf störf hjá Eimskip sem sölustjóri í sölu millilandaflutninga í janúar 1998. Við skipulagsbreytingar apríl 2001 tók Nanna við starfi ráðgjafa í verslunarþjónustu og varð síðar sama ár forstöðumaður bíla- og tækjaþjónustu. Í janúar 2003 varð hún verkefnastjóri ferlaverkefnis á flutningasviði, ferlatjóri á upplýsingatæknisviði í september 2004 og í október 2005 forstöðumaður ferlastýringar. Nanna Herborg lauk B.A. í sálarfræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og MBA í rekstrarhagfræði frá Rockford College USA árið 1994.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















