Nýr framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans
Elín Þórunn Eiríksdóttir
Elín Þórunn hefur undanfarin tvö ár gengt starfi forstöðumanns sölu á fyrirtækjasviði Símans. Frá árinu 1997 til 2005 var hún forstöðumaður sölu hjá Eimskip. Elín Þórunn útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1993.
Á sama tíma hefur Elín Rós Sveinsdóttir tekið við starfi forstöðumanns sölu á fyrirtækjamarkaði af Elínu Þórunni. Elín Rós er 33 ára og hefur starfað hjá Símanum síðan 2002. Fyrst sem viðskiptastjóri en deildarstjóri viðskiptastjórnunar frá því í desember 2005. Frá árinu 1994 til 2002 starfaði Elín Rós hjá Norðurljósum m.a. sem þjónustustjóri félagsins.
Elín Rós er með Diplómanám í stjórnun og starfsmannamálum frá Háskólanum í Reykjavík.




















