Northern Travel kaupir flugfélagið Astraeus að fullu
Boeing 737 þota breska flugfélagsins Astraeus í litum Iceland Express.
Í tilkynningu kemur fram að megin áhersla félagsins er rekstur flugfélaga og fyrirtækja í ferðaiðnaði á Norðurlöndunum og í Norður Evrópu. Dóttur- og hlutdeildarfélög Northern Travel Holding hf eru: Sterling Airlines A/S (100%), Iceland Express ehf (100%), Astraeus Limited (100%), Hekla Travel A/S (100%) og Ticket Travel Group AB (30%).
Astraeus sinnir verkefnum í leiguflugi og áætlanaflugi og gerir út starfssemi sína frá London Gatwick í Bretlandi. Félagið hefur starfað 5 ár, með verkefni um allan heim og þar á meðal á Íslandi.
Floti Astraeus samanstendur af 9 flugvélum: fimm Boeing 757-200, tveimur Boeing 737-700 og tveimur Boeing 737-300.



















