Viðskipti
| mbl
| 19.11.2007
| 16:29
Skoðar skráningu hlutafjár í erlendri mynt
mbl.is
Viðskiptaráðuneytið segir, að áhugi innlendra fyrirtækja, sem skrásett eru á skipulegum verðbréfamarkaði hér á landi, hafi að undanförnu aukist á að skrá hlutafé sitt í erlendri mynt aukist verulega. Af því tilefni hafi spunnist umræður um hvernig standa skuli að greiðsluuppgjöri vegna viðskipta með hlutabréf hér á landi sem skráð eru í erlendri mynt.
Formaður nefndarinnar verður Jón Sigurðsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri og bankastjóri Norræna fjárfestingabankans. Óskað hefur verið eftir tilnefningum frá Seðlabanka Íslands, Samtökum fjármálafyrirtækja, Verðbréfaskráningu Íslands hf. og Fjármálaeftirlitinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















