Viðskipti
| Morgunblaðið
| 22.11.2007
| 5:30
| Uppfært
6:42
Sammála niðurstöðunni
Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, sagði að þótt hann gæti hugsanlega gert athugasemdir við tiltekna þætti í matsskýrslu Standard & Poor's (S&P) væri hann sammála meginniðurstöðu matsfyrirtækisins um stöðu efnahagsmála.
„Ég ætla ekki að deila við S&P um að hér sé ójafnvægi, það er augljóst,“ sagði Ingólfur. „Ég kæri mig ekki um að vera í einhverjum hártogunum um hvort þeir byggi á nákvæmlega réttum tölum, ég held að það skipti ekki öllu máli, sagði hann. Stjórnvöld ættu að vita upp á sig sökina. Sú gagnrýni á þau sem kæmi fram hjá S&P væri algjörlega réttmæt, þ.m.t. um að Íbúðalánasjóður hefði haldið niðri vöxtum hér á landi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















