Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.11.2007
| 5:30
| Uppfært
10:55
Icelandair Cargo flýgur með fisk milli Nýfundnalands og Evrópu
Icelandair Cargo, dótturfélag Icelandair Group, hefur samið við aðila í Kanada um fraktflug til og frá Gander á Nýfundnalandi.
Um er að ræða flutninga á ferskum sjávarafurðum og hlutum tengdum olíu- og gasiðnaði. Farnar verða fimm reynsluferðir á milli Keflavíkur og Gander í nóvember og desember.
Mikil eftirspurn
Í tilkynningu frá Icelandair Cargo segir að stjórnvöld á Nýfundnalandi hafi efnt til átaks í útflutningi, meðal annars á ferskum sjávarafurðum í samstarfi við þarlenda framleiðendur. Mikil eftirspurn sé eftir ferskum fiski í Evrópu, en erfitt hafi verið að koma honum í flug þar til að nú hafi opnast leið fyrir vörurnar um Keflavíkurflugvöll.Flogið verður frá Gander á föstudögum með Boeing 757-200-fraktþotu og verður fiskinum dreift frá Keflavík á markaði í Bretlandi og meginlandi Evrópu.
Segir í tilkynningunni að heppnist þessi tilraun sé stefnt að reglubundnu flugi frá byrjun næsta árs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















