Viðskipti
| mbl
| 10.12.2007
| 9:51
Sjálfkjörið í stjórn FL Group
mbl.is
Sjálfkjörið er í stjórn FL Group en hluthafafundur félagsins verður haldinn þann 14. desember næstkomandi. Alls koma fimm nýir inn í stjórn félagsins en einungis Jón Ásgeir Jóhannesson og Þorsteinn M. Jónsson bjóða sig fram til endurkjörs.
Eftirtaldir bjóða sig fram til stjórnarsetu í FL Group: Gunnar Sigurðsson, Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Edwald, Pálmi Haraldsson, Þórður Már Jóhannesson og Þorsteinn M. Jónsson.
Peter Mollerup og Smári S. Sigurðsson bjóða sig fram sem varamenn í stjórn.
Í núverandi stjórn FL Group sitja: Jón Ásgeir Jóhannesson, formaður, Þorsteinn M. Jónsson, varaformaður, Magnús Ármann, Paul Davidson, Skarphéðinn Berg Steinarsson og Smári S. Sigurðsson.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















