Afkoma Lehman betri en spáð var
Höfuðstöðvar Lehman Brothers í New York. AP
Lehman Brothers Holdings, fjórði stærsti fjárfestingabanki Bandaríkjanna, hagnaðist um 870 milljónir dala eða 1,54 dali á hlut á fjórða ársfjórðungi rekstrarársins sem lauk þann 30. nóvember sl. Er þetta mun betri afkoma heldur en greiningardeildir höfðu spáð. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 987 milljónum dala eða 1,72 dölum á hlut.
Samkvæmt upplýsingum frá bankanum skýrist hagnaðurinn einkum af viðskiptum með verðbréf og þjónustuþóknunum. Tekjur Lehman drógust saman í fjórðungnum, námu 4,39 milljörðum dala samanborið við 4,53 milljarða dala í fyrra.
Lehman er stærsti lánveitandi undirmálslána í Bandaríkjunum. Greiningardeildir höfðu að meðaltali spáð bankanum hagnaði upp á 1,42 dali á hlut af 4,26 milljarða tekjum.
Á þriðja ársfjórðungi rekstrarársins færði Lehman 1,3 milljarða dala á afskriftarreikning vegna ástandsins á fjármálamarkaði og er það mun minna heldur en margir samkeppnisaðilar bankans gerðu. Á fjórða ársfjórðungi námu afskriftirnar 830 milljónum dala.
Lehman er fyrstur bandarísku fjárfestingabankanna til að birta uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung en í næstu viku verða birt uppgjör Goldman Sachs Group, Bear Stearns og Morgan Stanley.



















