Varað við fyrirtækinu Euro Business Guide

Samtök iðnaðarins vilja vara við fyrirtækinu Euro Business Guide sem virðist vera með starfsemi bæði í Hollandi og á Spáni. Fyrirtækið sendir nú út bréf, bæði í tölvupósti og með hefðbundnum pósti, þar sem fyrirtækjum er gefin kostur á að skrá sig í gagnagrunn þess.

Í póstinum sem fylgir kemur fram að „uppfærsla" upplýsinganna sé viðkomandi að kostnaðarlausu en þegar betur er að gáð eru brögð í tafli. Í smáa letrinu stendur hins vegar að viðkomandi fyrirtæki sé að skuldbinda sig til þriggja ára og skráningargjald hvers árs sé 990 evrur. Full ástæða er til að vara íslensk fyrirtæki við aðilum sem þessum, að því er segir í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.

SI og SA vöruðu í apríl 2005 við samskonar prettum. Þá var varað við sænska fyrirtækinu Nordisk Industri og fyrirtækjunum Nordisk Affärer, Euro Trade Forum og European City Guide. Ekki er útilokað að sömu aðilar standi jafnvel á bak við öll fyrirtækin, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK