Vill ekki kveða upp úr um að Nyhedsavisen fái meira fé
Brynjar Gauti
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, vill ekki í samtali við viðskiptaútgáfu danska blaðsins Berlingske Tidende kveða upp úr um hvort Baugur muni leggja meira fé til útgáfu Nyhedsavisen í Danmörku. Jón Ásgeir segir hins vegar að þau markmið um útbreiðslu, sem sett voru með útgáfu blaðsins, hafi náðst það sem af er.
Berlingske segir, að aðstandendur Nyhedsavisen hafi fengið 406 milljónir danskra króna til rekstrarins ef marka megi síðasta uppgjör sem birst hafi. Ekki sé ljóst hve mikið eftir sé af því fé þar sem lítið sé veitt af upplýsingum um fjárhagslega stöðu blaðsins. Hins vegar sé ljóst að mikið tap sé af rekstri danskra fríblaða um þessar mundir.
Rifjað er upp, að í ágúst í fyrra hafi Jón Ásgeir sagt við blaðið Børsen, að útgáfusjóðurinn byrji með 400 milljónir danskra króna og hægt sé að auka fjármagnið í 800 milljónir danskra króna.
Berlingske spyr Jón Ásgeir nú hvort lagt verði meira fé til reksturs Nyhedsavisen. Jón Ásgeir svarar, að staðan verði metin ef ósk komi um meira fé. Útgáfusjóðurinn hafi þó þegar fengið töluvert fé og menn muni sjá til.
Jón Ásgeir segir, að aðstandendur Baugs Group séu mjög þolinmóðir og þegar hann er spurður hvað það merki svarar hann, að þeir geri alltaf það sem þeir telji rétt. Þegar þeir trúi ekki lengur á verkefni: „then we change our minds," hefur blaðið eftir Jóni Ásgeiri.
Spurður hvort hann trúi enn á Nyhedsavisen svarar hann játandi og segist telja að ljóst sé að blaðið hafi náð markmiðum um upplag.



















