Heimilað að auka hlutafé FL Group
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group, og Jón Sigurðsson, forstjóri, á hluthafafundinum í morgun. mbl.is/Golli
Samþykkt var á hluthafafundi í FL Group í morgun að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 3.659.265.291 krónur að nafnverði með útgáfu nýrra hluta á genginu 14,7 til að efna samning við Baug Group og tengd félög um kaup FL Group á hlutum í fasteignafélögum og -sjóðum.
Þá var samþykktum félagsins breytt á þann hátt, að kveðið er á um að tilgangur félagsins sé að starfa sem fjárfestingafyrirtæki, þ.e. að ávaxta fé, sem hluthafar hafa bundið í starfseminni með fjárfestingum, þar á meðal í dóttur- og hlutdeildarfélögum.
Sjálfkjörið var í stjórn félagsins á fundinum. Í stjórninni sitja Gunnar S. Sigurðsson, Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Edwald, Pálmi Haraldsson, Þórður Már Jóhannesson og Þorsteinn M. Jónsson. Varamenn eru Peter Mollerup og Smári S. Sigurðsson.



















