Glitnir spáir óbreyttum vöxtum

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Kristinn

Greining Glitnir spáir því að bankastjórn Seðlabanka Íslands haldi óbreyttum vöxtum í 13,75% enn um sinn. Tilkynnt verður um stýrivaxtaákvörðun bankastjórnar á fimmtudag.

Líkur á stýrivaxtahækkun hafa þó heldur aukist að undanförnu, að því er segir í Morgunkorni Glitnis. „Verðbólguþrýstingur hefur farið vaxandi síðustu mánuði ársins, mæld verðbólga var 5,9% á ársgrundvelli í desember og undirliggjandi verðbólga nálgast 8%. Verðbólgan hefur verið yfir spá Seðlabankans þennan tíma. Þá benda landsframleiðslutölur fyrstu þriggja fjórðunga ársins til meiri hagvaxtar og framleiðsluspennu á árinu en Seðlabankinn reiknaði með í þjóðhagsspá þeirri sem kom út 1. nóvember.

Á móti vegur að sviptingar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum að undanförnu hafa leitt til þess að lánskjör fjármálafyrirtækja hafa versnað og framboð lánsfjármagns hefur dregist saman. Þetta mun draga úr  eftirspurn í hagkerfinu á næstunni og þar með verðbólguþrýstingi. Þá munu eignaverðsáhrif lækkunar á hlutabréfamarkaði að undanförnu einnig draga úr innlendri eftirspurn. Þessu til viðbótar hafa líkur á hægum hagvexti á næstunni í Bandaríkjunum og víðar meðal helstu viðskiptalandanna aukist. Við þetta má bæta að kjarasamningar standa nú yfir en niðurstaða þeirra skiptir miklu varðandi hvert er skynsamlegt næsta skref Seðlabankans.

Við búumst við hörðum tóni Seðlabankamanna í þeim rökstuðningi sem fylgir vaxtaákvörðun þeirra á fimmtudaginn kemur. Þeir munu halda galopnum þeim möguleika að vextir verði hækkaðir á þarnæsta vaxtaákvörðunarfundi þeirra sem er 14. febrúar næstkomandi og halda stíft fram þeirri skoðun að svigrúm til vaxtalækkunar muni ekki skapast fyrr en eftir mitt næsta ár," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK