Viðskipti
| mbl
| 19.12.2007
| 11:50
Samruni Glitnis í Noregi og BNbank samþykktur
Norska fjármálaráðuneytið samþykkti samruna Glitnis Bank ASA og BNbank þann 12. desember síðastliðinn. Samruninn sem kallaður hefur verið Albatross verkefnið verður þar af leiðandi á áætlun og mun ljúka í byrjun mars á næsta ári.
Hinum sameinaða banka hefur jafnframt verið heimilað að yfirtaka öll hlutabréf í Glitnir Factoring ASA, Glitnir Securities ASA og 70% hluta í Glitnir Property Holding AS með dótturfyrirtækinu Glitnir Property Group AS, sem á fasteignafélögin Union Eiendomskapital AS og Glitnir Norsk Næringsmegling AS.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















