Lítill áhugi á ensku landsliðstreyjunni

Treyja enska knattspyrnulandsliðsins.
Treyja enska knattspyrnulandsliðsins.

Hlutabréf breska íþróttavöruframleiðandans Umbro hafa hækkað um 12,9% það sem af er degi í Kauphöllinni í Lundúnum. Fyrr í dag greindi Nike frá því að fyrirtækið hefði keypt tæplega 20% hlut í Umbro af Sports Direct International. Nike gerði yfirtökutilboð í Umbro í október upp á 193,06 pens á hlut og var hluturinn nú keyptur á því verði.

Í morgun sendi Umbro frá sér afkomuviðvörun um að tekjur  félagsins verði minni í ár heldur en spáð var þar sem mun minna hefði selst af treyjum merktum enska landsliðinu. Er talið að það skýrist af lélegu gengi liðsins í Evrópukeppni landsliða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK