Yfirtökunefnd skoðar eignarhald FL Group
mbl.is
Yfirtökunefnd hefur ákveðið að skoða eignarhald FL Group að lokinni uppstokkun á því og hlutafjárhækkun og þá hvort yfirtökuskylda hafi myndast í félaginu milli tengdra félaga sem gætu farið yfir 40% eignarmörkin. Kom nefndin saman til fundar fyrir helgi og í fundargerð kemur fram að hún muni hittast að nýju.
Formaður nefndarinnar, Viðar Már Matthíasson, vék sæti í þeirri umfjöllun sökum vanhæfis en systir hans, Guðbjörg Matthíasdóttir í Vestmannaeyjum, er meðal stórra hluthafa FL Group. Tekur Stefán Már Stefánsson prófessor sæti Viðars í nefndinni vegna málsins.
Eins og fram hefur komið er Baugur með félagi sínu BG Capital stærsti hluthafinn í FL Group með 36,47% hlut. Næstu hluthafar þar á eftir eru Gnúpur fjárfestingafélag með 10,9%, Oddaflug, félag Hannesar Smárasonar, með 10,86%, Materia Invest á 6,28% og Fons Pálma Haraldssonar á 6,13%. Meðal þess sem yfirtökunefnd kemur til með að skoða eru tengsl Baugs við aðra stærstu hluthafa eins og Oddaflug, Materia Invest og Fons.
Listi var birtur í kauphöllinni á föstudagskvöld með 20 stærstu hluthöfum FL Group að lokinni hlutafjárhækkun upp í 9,9 milljarða króna að nafnvirði. Tuttugu stærstu fara með alls yfir 90% hlutafjár. Hinir fimm stærstu hafa verið nefndir en næstu fimm þar á eftir eru Sund með 3,24%, Stím með 3,16%, Smáey (félag Magnúsar Kristinssonar) 2,29%, Kristinn ehf. (félag Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu) 1,4% og 101 Capital er með 1,21% en það tengist Ingibjörgu Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns FL Group.
Í næstu hluthafasætum eru lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir á vegum bankanna, auk félaga eins og Eyris Invest, sem á 1,09%, Landic Property á 0,82%, FL Group er skráð fyrir 0,65% og Glitnir er 20. stærsti hluthafinn með 0,56% hlut.
Í hnotskurn
» Miklar breytingar hafa orðið á eignarhaldi FL Group sem yfirtökunefnd á vegum kauphallarinnar hefur nú tekið til skoðunar.» Stærsti hluthafinn er BG Capital með 36,47% hlut en tengsl félagsins við aðra eigendur verða skoðuð af nefndinni.
» Listi yfir 20 stærstu hluthafa FL Group hefur verið birtur í kauphöllinni.



















