Bjarni kaupir hlut í Glitni Property Holding
Bjarni Ármannsson. mbl.is/Jim Smart
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hefur fest kaup á 12% hlut í dótturfélagi Glitnis, Glitni Property Holding (GPH), að verðmæti 970 milljónir. Glitnir mun áfram eiga 48,8% í GPH eftir viðskiptin.
Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar Íslands, að samningurinn sé gerður með fyrirvara um samþykki stjórnar GPH og annarra eigenda, en þeir eru alls 21 talsins og eiga hlut á móti Glitni í
GPH.
Hagnaður Glitnis af sölunni nemur u.þ.b. 300 milljónum króna en þar að auki færist til tekna söluhagnaður að fjárhæð 1,5 milljarðar vegna tilfærslu eftirstandandi eignarhlutar út úr samstæðu bankans. Ef tekið er mið af nýjustu viðskiptum er óinnleyst gangvirðisbreyting eftirstandandi hlutar í kringum 1 milljarður króna.
Bjarni Ármannsson verður tilnefndur í stjórn Glitnir Property Holding. Stjórn félagsins skipa nú Lárus Welding, Alexander Guðmundsson, Morten Bjørnsen, Knut Marius Stokke, Bjørn Henningsen, Peter Leimdörfer, Petter Bjørnstad og Frank Reite, sem er stjórnarformaður.
Í tilkynningunni segir, að Bjarni og Reite hafi komið á fót ráðgjafarhluta Glitnis á fasteignamarkaðnum í Noregi sem síðar varð að Glitnir Property Holding á vormánuðum 2007. Glitnir mun áfram vera hluthafi í Glitnir Property Holding og styðja við starfsemi félagsins
GPH á að fullu Glitnir Property Group AS og BSA AS og 90% í Leimdörfer Holding AB. Félagið er með skrifstofur í Osló, Stokkhólmi, Helsinki og Frankfurt og hefur á að skipa 84 starfsmönnum.



















