Kaupþing selur starfsemi sína í Færeyjum

mbl.is

Kaupþing banki hefur selt starfsemi sína í Færeyjum til Eik Banki
P/F. Eik Banki tekur yfir starfsemi Kaupþings í Færeyjum þann 31. desember.

Starfsemi Kaupþings í Færeyjum, sem hófst árið 2000, hefur einkum snúist um miðlun verðbréfa, eignastýringu, útlán og aðra hefðbundina
fjárfestingabankastarfsemi. Alls starfa nú um 30 manns hjá Kaupþingi í Færeyjum. Eik Banki greiðir fyrir starfsemina með reiðufé og mun yfirtaka innlán Kaupþings í Færeyjum sem og megnið af þeim lánum sem bankinn hefur veitt þar.

Áhrif sölunnar á rekstur og efnahag Kaupþings eru óveruleg að sögn bankans. Salan er háð venjubundnum fyrirvörum af hálfu kaupanda og seljanda, samkvæmt tilkynningu.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK