Nýr bankastjóri Icebank
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Icebank, lætur af störfum hjá bankanum. Í tilkynningu frá bankanum segir að samkomulag hafi orðið um afsögn hans. Stjórn Icebank hefur ráðið Agnar Hansson sem nýjan bankastjóra. Agnar hefur verið framkvæmdastjóri fjárstýringar Icebank sl. tvö ár.
Agnar starfaði meðal annars að uppbyggingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) og var fyrsti deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Agnar er fæddur 1965 og er með meistarapróf í raunvísindum og hagfræði frá Háskólanum í Árósum.
Í tilkynningu bankans segir: „Finnur hefur stýrt Icebank frá árinu 2002 og leitt bankann í gegnum mikið umbreytingaferli á undanförnum misserum. Umsvif bankans hafa vaxið verulega undir stjórn Finns. Í árslok 2001 námu heildareignir hans 54 milljörðum króna en í árslok 2007 er áætlað að heildareignir verði liðlega 200 milljarðar króna. Ennfremur hefur hlutverk bankans sem þjónustubanki sparisjóðanna verið útvíkkað, honum fengin ný verkefni m.a. á sviði fjárfestingarbankastarfsemi og fyrirtækjaráðgjafar. Þá hefur eignarhald bankans einnig breyst á síðustu vikum eins og áður hefur verið greint frá."



















