Yfirtaka á NIBC erfið án evrunnar
Eins og fram hefur komið hefur Ársreikningaskrá synjað beiðni Kaupþings þar sem bankinn er ekki talinn uppfylla skilyrði evruuppgjörs og byggist sú synjun m.a. á umsögn Seðlabankans. Hefur Kaupþing áfrýjað þessari niðurstöðu til fjármálaráðherra.
Þegar eftir því var leitað í gær við Seðlabankann, Kaupþing og Ársreikningaskrá að fá afrit af umsögn Seðlabankans var því á öllum stöðum synjað. Miðað við synjun Ársreikningaskrár má ætla að sú umsögn hafi verið neikvæð en rökin fyrir afstöðu Seðlabankans eru ekki komin fram. Áður hefur þó verið haft eftir formanni bankastjórnar í fjölmiðlum að evrubókhald stærstu fjármálafyrirtækja landsins gefi haft skaðleg áhrif á peningamálastefnu bankans.
Í Vegvísi Landsbankans er bent á að eftir yfirtöku Kaupþings á NIBC verði meirihluti tekna bankans í annarri mynt en krónu. Hins vegar eigi Fjármálaeftirlitið enn eftir að samþykkja yfirtökuna og því liggi ekki ljóst fyrir hvort tekjur NIBC verði í bókum Kaupþings eða ekki. Stjórnendur Kaupþings hafi áður gefið upp að þeir telji sig ekki geta gert upp reikninga sína í annarri mynt en evru eftir kaup bankans á NIBC, til að uppfylla skilyrði alþjóðlega reikningsstaðalsins (IFRS).



















