Norhtern Rock selur eignir fyrir 280 milljarða
Merki Northern Rock. Reuters
Breski bankinn Northern Rock, sem lenti í miklum erfiðleikum á síðasta ári, tilkynnti í dag að hann hefði selt bandaríska fjárfestingarbankanum JP Morgan eignir fyrir 2,25 milljarða punda, jafnvirði um 280 milljarða íslenskra króna.
Um er að ræða lánakröfur úr kröfusafni breska bankans.
Tilkynnt var í vetur, að Englandsbanki hefði samþykkt ósk Northern Rock um sérstaka aðstoð vegna lausafjárerfiðleika. Viðskiptavinir bankans brugðust hart við og vildu taka út sparifé sitt og marga daga á eftir voru langar raðir utan við útibú bankans.
Í tilkynningu frá Northern Rock segir, að andvirði sölunnar verði notað til að endurgreiða Englandsbanka hluta af fjármögnuninni frá því í haust.
Til þessa hefur Northern Rock fengið um 25 milljarða punda að láni hjá Englandsbanka.



















