Kvos stofnar dótturfélag í Færeyjum
Eignarhaldsfélagið Kvos, sem meðal annars á prentsmiðjuna Odda og Kassagerðina hefur stofnað dótturfyrirtæki í Færeyjum til að halda utan um sölustarfsemi félagsins þar.
Fyrirtækið hefur fengið nafnið Kassagerðin Føroyar P/F. Fram kemur í tilkynningu að félaginu sé ætlað að styrkja stöðu Kassagerðarinnar í Færeyjum, en þar hafi verið miklar hræringar á umbúðamarkaði að undanförnu.
Með stofnun fyrirtækis í Færeyjum vilja stjórnendur Kvosar taka sölu og markaðssetningu í eigin hendur og efla samskipti við viðskiptavini. Kassagerðin hafi þjónað færeyska markaðnum með umbúðir í áratugi og ætlar sér að gera það áfram.
Framkvæmdastjóri ytra er Gunnar Djurhuus sem áður var sölustjóri Farpack, sem var umboðsaðili Kassagerðarinnar í Færeyjum.
Kvos á 10 dótturfélög á Íslandi, í Bandaríkjunum og Evrópu, með rúmlega 1300 starfsmenn.



















