Stefnt að jafnvægi í rekstri Nyhedsavisen í nóvember
mbl.is/Brynjar Gauti
Stefnt er að því að jafnvægi komist á í rekstri Nyhedsavisen í Danmörku í nóvember á þessu ári eftir mikinn taprekstur frá því blaðið kom fyrst út í október 2006. Auglýsingaverð verður tvöfaldað og stefnt er að því að fjölga föstum lesendum úr um 540 þúsund í um 800 þúsund á dag án þess að auka upplag blaðsins, sem er 525 þúsund eintök.
Þetta kemur fram á viðskiptavef Berlingske Tidende. Í gær var tilkynnt, að Morten Lund hefði eignast 51% hlut í Dagsbrun Media, sem gefur Nyhedsavisen út Baugur Group, sem áður var aðaleigandi, verður næststærsti hluthafinn. Morten Lund átti fyrir hlut í Dagsbrun Media.
Berlingske vísar í gögn, sem hugsanlegir fjárfestar fengu í hendur. Þar komi fram að tap á rekstri blaðsins var 420 milljónir danskra króna, jafnvirði nærri 5,5 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári, og gera megi ráð fyrir að uppsafnað tap verði 700 milljónir danskra króna áður en reksturinn fari að skila hagnaði í nóvember.
Gert er ráð fyrir því að verð á heilsíðuauglýsingu í blaðinu hækki úr 17.600 dönskum krónum í 34.600 krónur en stefnt er að því að auglýsingatekjur þrefaldist frá nóvember á síðasta ári til nóvember á þessu ári. Þá á að lækka kostnað við reksturinn.
Loks á dreifingarfyrirtækið Morgendistribution Danmark í nóvember að afla 4,4 milljóna danskra króna tekna frá öðrum viðskiptavinum en Nyhedsavisen. Þessar tekjur námu 600 þúsund dönskum krónum í nóvember 2007.



















