Viðskipti
| mbl
| 21.1.2008
| 16:35
Krónan lækkaði
Íslenska krónan lækkaði nokkuð í dag, eða um 2,37% Gengisvísitala krónunnar var 124,75 við opnun markaðarins í morgun, en er nú 127,5. Velta á millibankamarkaði var 33,8 milljarðar. Lokastaða Bandaríkjadollars var 66,88 krónur, gengi evru 96,45 og gengi breska pundsins 129,85 krónur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















